Jamms, þú segir nokkuð. Staðreyndin að ég þarf að vinna á við þrjá í kvöld af því að konurnar ákváðu að taka sér frí drap eiginlega niður allla mína löngun til að bera skilning eða veita stuðning til þessara aðgerða. Athugið að ég er á nákvæmlega sömu launum og þær og á meðan þær eru röltandi um niður í bæ, ef þær eiga þá eftir að fara niður í bæ, þá eykst álagið á mér en ég fæ ekki yfirvinnu og ekkert frí í staðinn, en þær halda fullum launum yfir daginn. Hvar er jafnréttið í því?