Fólk sem ætlar að kaupa mótorhjól er mikið að spá í hvað er best að fá sér, sérstaklega ef það er að kaupa fyrsta hjólið. Prófanir hjá hinum ýmsu tímaritum eru ágætis byrjunarreitur, stundum eru þeir aðilar ekki alveg sammála en yfirleitt er niðurstaðan svipuð. Staðreyndin er hinsvegar sú að mótorhjól eru í dag flest orðin það góð að þessar niðurstöður eru oft byggðar á einhverjum smáatriðum, sem mjög oft skipta hinn venjulega hjólamann engu máli. Sem dæmi má nefna nýlega prófun tímaritsins...