Þú ert að taka undir orð Milton Friedman þegar hann sagði að eina siðferðislega skylda stjórnenda í fyrirtækjum sé að skila hluthöfunum arði. Þetta er umdeilt sjónarmið, m.a.s. meðal frjálshyggjumanna, og af nokkrum ástæðum. Til dæmis: 1) Fyrirtæki eru, eins og einstaklingar, virkar einingar í samfélaginu. Rétt eins og frjálshyggjumenn boða frjáls framlög til að aðstoða þá sem minna mega sín í stað þess að ríkið hafi það á sinni könnu (og sinni jafnilla og öllu öðru), þá eiga fyrirtæki að...