Þú getur fært öll þau rök sem þú vilt, það væri þó ekkert nema sönnun þess að það má færa sterk og sannfærandi rök fyrir alls kyns þvaðri. Staðreyndin, sama hvers kyns reductio ad absurdum þú reynir að beita hér (og ég viðurkenni að ég átta mig ekki á því hvar villan liggur), er ennþá sú að þetta gerðist. Alskyns rök er hægt að færa fyrir því að hreyfing sé ómöguleg, ekkert sé til og að 1+1 séu bara alls ekki 2, en þrátt fyrir slíka misnotkun á verkfæri sannleikans, röksemdinni, þá breytir...