Jám.. ég sagði þetta við mömmu þegar ég var 4 ára.. hún var að gifta sig og man alltaf eftir þessu.. ég kom heim með þetta flúr í gær og hún hafði ekki hugmynd :)
Ég var á Tenerife 2008, ég fór á tattoo stofu með fyrirspurn um stórt og detailað tattoo, ég lét ekki verða af því, var ekki viss um getu flúrarans, en þú mátt svo sannarlega vera ánægður með þetta verk, til hamingju.
Ég skellti mér á old barber shop í einni hliðargötunni á strikinu, líst alltof vel á hana og ég ætla svo sannarlega að fara og fá mér tattoo þar áður en ég fer heim.. ! takk samt
afhverju að fá sér eins flúr og svo margir eru með fyrir? tribal, stjörnur og í þínu tilfelli EggertSSON ég myndi gefa þessu nokkra mánuði og í leiðinni spotta þá sem eru með svona flúr fyrir og hugsa síðan um það.
ég elska hundinn minn meira en allt, ég myndi ekki vilja fá mér tattoo um hana núna, en ef hún myndi hörfa frá þá myndi ég gera það án efa, eitthvað lítið og minningarvert.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..