Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rastafari
Rastafari Notandi frá fornöld 248 stig

Mosley sigrar!!! (3 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Shane Mosley sigraði Shannan Taylor laugardaginn 10.mars í bardaga um WBC heimsmeistaratitilinn. Taylor hætti eftir fimmtu lotu, en var þó búinn að standa sig ágætlega framan af. Ég held að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá þjálfara Taylors að stoppa þetta, þó maður hefði gjarnan viljað sjá hann enda þetta eins og “maður”. En svona er þetta!! Mosley er frábær boxari og það er alltaf yndislegt að fylgjast með honum. Svo er það bara De La Hoya- Gatti næst þann 24.mars. Það gæti orðið...

Lewis segir NEI!!!!!!!!!! (18 álit)

í Box fyrir 23 árum, 1 mánuði
Lennox Lewis sagði nýlega í viðtali við breska blaðið London Daily Mail að hann væri búinn að fá nóg af Mike Tyson og hans fólki.“ Ég er orðinn mjög þreyttur á því að Tyson og umboðsmaðurinn hans Shelly Finkel haldi því fram að það sé ég sem vilji ekki berjast,” sagði meistarinn. “ Ég vil skýra frá stöðunni eins og hún er. Það eru þeir sem sífellt koma sér undan bardaganum og láta mig bíða.” Þegar hann var svo spurður hvort eitthvað yrði af bardaganum, sagði hann“ Það er ekki smuga að þessi...

Leyfið hans Tyson er í hættu!!!!! (6 álit)

í Box fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Boxleyfið hans Mike Tyson er í hættu. Sagt er að eitthvað óvenjulegt hafi komið fram í lyfjaprófi sem hann fór í fyrir bardagann á móti Andrew Golota. Nefnd mun funda um málið á þriðjudaginn næsta þann 16.jan og greiða atkvæði um sátt sem andstandendur Tyson´s buðu. Ég er enginn Tyson-fan í sjálfu sér, en ég vil alls ekki missa hann úr boxinu. Vona að allt fari vel. Kveðja Rastafari. P.S hvað er að frétta af Paul Ingle?

Roy Jones Jr. með yfirlýsingar!!!!!! (5 álit)

í Box fyrir 23 árum, 3 mánuðum
WBC/WBA/IBF/IBA/NBA Léttþungavigtarmeistarinn Roy Jones Jr. sagði nýlega í viðtali að eftir að hann væri búinn að berja Derrick Harmon ætlaði hann að fara í hvern sem er. Jones er þegar búinn að yfirlýsa að hann ætli í Dariusz Michalczewski næst, eða þá að hann ætli að berjast aftur við Bernhard Hopkins. Eftir það ætlar hann að hitta Trinidad í supermillivigtarflokknum(168), sem þýðir að Jones þyfti að létta sig um einn flokk, enn Trinidad að þyngja sig um tvo. Báðir hafa þeir sagt að sú...

Ike Ibeabuchi væri heimsmeistari............ (5 álit)

í Box fyrir 23 árum, 3 mánuðum
….ef hann væri ekki inni í geðdeild þessa dagana, leyfi ég mér að fullyrða. Ibeabuchi þessi var búinn að koma sér vel fyrir í Þungavigtinni og var meðal annars fyrsti maðurinn til að sigra David Tua. Sagt er að viðurkenningin sem hann fékk eftir sigurinn á Tua, hafi stigið honum það mikið til höfuðs, að hann hafi orðið hálfklikkaður. Ein sagan af honum er þannig að þegar hann var á leiðinni út í flugvél ásamt umboðsmanni sínum, hafi hann þverneitað að stíga um borð vegna þess að það væru...

Bætir De La Hoya nýrri fjöður í hattinn sinn? (9 álit)

í Box fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Oscar“Gullni drengur”De La Hoya hefur ekkert barist síðan 17.júni s.l þegar hann tapaði fyrir Shane Mosley. Í staðinn sneri kappinn sér að tónlistinni, og með ágætum, virðist vera. Það er nefnilega búið að tilnefna hann til Grammy-tónlistarverðlaunanna í flokki Best Latin Pop. Þar mun hann keppa við Christinu Aquilera ásamt fleirum. Grammy-verðlaunin verða afhent þann 21.feb n.k og “spennandi”:) að sjá hvernig Gullhnokkinn stendur sig. Fyrir mitt leyti vona ég að þessi tónlistarfluga standi...

Acelino Freitas þann 27.janúar (4 álit)

í Box fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Búið er að finna andstæðing fyrir Acelino Freitas(28-0 28KO´S) þann 27. janúar n.k. Það er Panamamaðurinn Orlando Soto(27-5) sem ætlar að reyna að svipta Brasilíska Bombaranum WBO titlinum. Bardaginn verður í Brasilíu. Freitas þessi hefur verið að koma sterkur inn í Léttléttvigtarflokkinn að undarförnu og boxáhugamenn vilja sjá hann berjast við marktækan andstæðing. Léttléttvigtarflokkurinn er sá allra skemmtilegasti í dag og þar eru hlutirnir heldur betur að gerast. Við vitum öll af...

Næsti "stóri" bardaginn (7 álit)

í Box fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Roberto Garcia og Joel Casamayor WBA léttléttvigtarmeistari eiga að berjast þann 6.janúar n.k. Þetta eru ekki mjög þekktir náungar, enn góðir enga síður. Roberto Garcia tapaði IBF beltinu sínu til Diego Corrales í Október "99 og hefur verið á niðurleið síðan. Joel Casamayor er kúbanskur flóttamaður sem barðist á ólympíuleikunum í Atlanta 1996 og fór svo aldrei aftur til Kúbu. Það er nógu slæmt að Sýn skuli ekki sýna þennan bardaga, enn að sýna ekki Corrales-Mayweather bardagann er bara hrein...

LOKSINS!!!!!!!! (14 álit)

í Box fyrir 23 árum, 4 mánuðum
LOKSINS gæti eitthvað farið að gerast hjá honum Roy Jones Jr, sem þar til nýlega var efstur á flestum P4P listum sem til eru. Eftir lélega frammistöðu í síðasta bardaga sínum á móti Eric Harding, eru margir farnir að efast um hugrekki hans. Þó að allir viti að þarna er um að ræða gríðarlega tæknilegan og flinkan boxara, eru menn byrjaðir að snúa baki við honum. Ég rakst nýlega á opinbert bréf frá IBF millivigtarheimsmeistaranum Bernhard Hopkins til Jones, þar sem hann hreinlega grátbiður...

Corrales vs. Mayweather (10 álit)

í Box fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég vildi vekja athygli ykkar á bardaga sem spekingar vestahafs eru þegar farnir að kalla bardaga ársins árið 2001. Þann 20.janúar n.k munu hinn 22 ára gamli Diego“Chico”Corrales(32-0 26 rothögg)og hinn 23 ára gamli Floyd Mayweather Jr. (24-0 18 rothögg) leiða saman hesta sína í Léttléttvigtarflokknum. Þarna er um að ræða tvo gríðarlega harða nagla og nánast ógerningur að segja til um útkomuna. Það er ekki og djúpt í árinni tekið þegar maður segir að þessir tveir strákar séu ekki vinir, því...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok