Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hiteval
Hiteval Notandi síðan fyrir 11 árum, 10 mánuðum 34 ára karlmaður
58 stig

Strætó (6 álit)

í Tilveran fyrir 10 árum, 9 mánuðum
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/05/27/vagnstjornar_straeto_bestir/ Það hlaut að vera að þeir æfðu sig í kappakstri.

Koorah! (2 álit)

í Hugi fyrir 11 árum, 2 mánuðum
Ég get ekki svarað ákveðið gömlum þráðum. Það er ekki hægt, einfaldlega því það er gamall þráður. Tilhvers að gefa gömlum þræði plús? Tilhvers að yfirhöfuð svara gömlum þræði? Þetta er allt eitthvað ógeð, hef ég heyrt. Þetta er þúveist, gamalt. Fólk hafði ekki neitt merkilegt að segja back in the days, við erum ekki gáfuð nema í nútímanum. Fortíðin var nefnilega tími án facebook. Við gátum ekki joinað grúppu og hlegið að hállfvitum, við vorum bara sem við erum. Og þessvegna var hugi ekki dauður.

Áfram gakk (0 álit)

í Smásögur fyrir 11 árum, 3 mánuðum
Áfram gakk, áfram gakk. Ég lít ekki til hægri, né lít ég til vinstri. Ég hlýði mér og geng áfram. Hægri fóturinn á í miklu kapphlaupi við vinstri fótinn og þeir skipta bróðurlega með sér forystunni sem ég nálgast vegg. Hægri fóturinn hikar eilítið, þarsem bráðum verður ekki hægt að ganga áfram, svo vinstri fóturinn sér sér tækifæri og ætlar að ná forystunni í eitt skipti fyrir öll. Það vill því ekki betur til en svo að jafnvægisskynið bregst mér og ég býðst óviljugur til að faðma...

SÖGURNAR AF SKUGGALEGA SKONDNA SPÆJARATEYMINU SEM GLEYMDI AÐ VERA SKONDIÐ OG BROTNAÐI (4 álit)

í Smásögur fyrir 11 árum, 4 mánuðum
Fyrir svona ári var ég greinilega eitthvað að hugsa um Harry og Heimi. Eftirfarandi komst óvart á blað við það tækifæri. -- SAGAN AF SKUGGALEGA SKONDNA SPÆJARATEYMINU SEM, ÞRÁTTFYRIR ÓLÍKLEIKA ÞESS, ER ÍSLENSKT (SAGA Í ÖLLUM TÍÐUM) Grámyglulegt kvöldið sat allt í kringum alla á þessum hluta jarðkringlunnar og gleypti í sig regnbogasinnaðar hugsanir líktog almannatengslalega velheppnuð kona í matvöruverslun byði heiminum uppá þær. Skýjaflóran sem hótaði manni, sem ekki hafði vitneskju til að...

Hvæsandi kvikindi (4 álit)

í Tilveran fyrir 11 árum, 6 mánuðum
Hvikult kvikindið hvæsti á mig. Og hvað átti ég að gera? Sparka í það? Flýja af vettvangi? Leigja spólu (og VCR-tæki)? Hvað mynduð þið gera í svipuðum aðstæðum? Við erum að tala um virkilega hvikult kvikindi. Eina stundina er það syngjandi og þá næstu ærandi. Eina stundina geðþekkir og þá næstu grámyglulegir. Eina stundina karlkyns, næstu kvenkyns. Þetta er óþolandi.

Baráttan um Bessastaði. (8 álit)

í Tilveran fyrir 11 árum, 8 mánuðum
Ég horfði nú ekki á mikið af þessum þætti (þarsem það hafði alveg farið framhjá mér að hann væri á dagskrá) en ég horfði á eitthvað sem gætu hafa verið "hraðaspurningar" því hver hafði aðeins smástund til að svara því sem hann var spurður að og alltíeinu eftir ákveðinn tíma greip kynnirinn framí með orðunum: "Takkfyrirþað! Þorvarður?" (ef einhver þeirra héti Þorvarður), jafnvel þó þau væru í miðri setningu að reyna að klára punkt, og aldrei fengu þau að klára hann nema þau hefðu kannski ekki...

Lífið (2 álit)

í Smásögur fyrir 11 árum, 9 mánuðum
Hvað er lífið? Ég sit aðeins og hugsa. Án þess væri ég ekki hérna. Án þess væri ansi tómlegt í þessum stóra alheimi. Ég hef frekar einsleita reynslu af lífinu. Í hvert sinn sem ég lifi, er það sem ég, og ég hef aðeins mína sýn á lífið, ekki nokkurs annars. Hvað er til dæmis lífið fyrir litlu lambi? Ég kynntist einu sinni lambi. Það fæddist í fimm stiga frosti eina nóttina. Móðir þess, gemlingur, sem var rétt um það bil eins árs, hafði ekki verið talin með lambi, og var hluti af hópi sem ekki...

Fjórir, eða svo (1 álit)

í Tilveran fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Einu sinni í vinnunni, og það nokkrum sinnum, skrifaði ég eitthvað dútl á blað þegar lítið var að gera. ----- Mér líst ekki á þetta. Framundan bíða óþokkar og valkyrjur, sundrunarflokkar geðsins. Leiðin liggur gegnum þyrnum stráð brennandi hraun við undirspil hátíðnihljóðfæra sinfóníuhljómsveitar þagnarinnar. Hvort sem ég lít til hægri eða vinstri starir á mig pyntingagjörn auðn. Ég hef ekki gengið nema þriðjung leiðarinnar. Hróp tómsins sem umlykur mig stigmagnast. Bensínlaus kílómetra frá...

Skáldsögubrot (2 álit)

í Smásögur fyrir 11 árum, 10 mánuðum
Ég byrjaði að vinna í skáldsögu sem ég á svolítið erfitt með að fullmóta. Ég skrifaði þó einhverjar senur og hérna er ein af þeim. Þetta stendur reyndar svolítið sér að því leyti að þetta er í eina sinn í bókinni sem aðalpersónan reykir gras. Endilega segið mér hvað ykkur finnst, hið minnsta með like-takkanum skemmtilega. ----- Ég veit að ég er hér. Ég stend og skima, hreyfist hægt og rólega framogtilbaka, til hægri, til vinstri, til hægri, til vinstri. Til hægri er rúm og til vinstri eru...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok