Því miður fellur Wolfenstein keppnin á Skjálfta 2 | 2002 niður. Ástæðan er einfaldlega of lítill áhugi (aðeins þrjú lið skráð). Vilji einhverjir ekki mæta á mótið sökum þessa, geta þeir afskráð sig á www.skjalfti.is/skraning (jafnvel þeir sem hafa staðfest).

Þetta þýðir alls ekki að við séum að “yfirgefa” RtCW, en munum þó í framhaldi fækka on-line þjónum ef spilun fer ekki að aukast. Geri hún það, munum við svo að sjálfsögðu taka hann aftur upp sem keppnisgrein á Skjálftamótum, og þjóna leikmönnum eftir bestu getu með on-line þjónum.


Kveðja,
Skjálftap1mpa