Búið er að uppfæra Simnet þjónana í útgáfu 1.31, sem þýðir að teleport- og resböggarnir ættu að vera farnir.

PunkBuster var enablaður í leiðinni, þótt hann sé ekki stilltur á að gera margt. Til dæmis fylgist hann ekki með neinum cvars, og stendur það ekki beint til.

Skrárnar getið þið nálgast á <a target=_top href="http://static.hugi.is/games/wolfenstein">http://static.hugi.is/games/wolfenstein</a>.

** uppfærsla, aðfaranótt föstudagsins langa **
mp_ice var BREYTT í 1.31, svo aðeins er unnt að spila það á þjónum sem keyra sömu útgáfu og clientinn manns. Því verður kippt úr rotation í nokkra daga. Nánari upplýsingar fljótlega :)


Góðar stundir,
Smegma