Daginn/Kvöldið

Hvað er málið með að svindla? Ég hef verið að spila og aðrir sem ég hef talað við á íslenska public servernum undanfarið og tekið eftir einu mjög merkilegu. Það virðist vera komin nýtísku bylgja sem ég vill kalla Nýbylgjusvindl-tískan. Fyrir stuttu þá gerði Billi(Pearl) stóra úttekt á þessu málefni sem ég vill telja undir sem bara viðvörun til okkar þar sem enginn þessa manna var bannaður(er ég held). Eftir þetta þá sást lítið til svona mála en þetta er komið aftur með krafti.
Þetta mun bara koma til með að skemma þetta litla samfélag okkar meira og enn færri spilarar munu verða eftir. Ef við tökum Counter-Strike samfélagið til dæmis, þá er svindl mjög víðtækt þar á landi. Ég man þegar ég spilaði þar þá mátti ekki vera betri en hinn aðilinn þá var maður kallaður svindlari og allt gert brjálað útaf eitthverju sem var algjört rugl. Ég er örugglega ekki að fara með rangt mál þegar ég segi að 40% allra Cs-ara svindla eða gera það oftar en bara einu sinni og einu sinni. Persónulega þá nenni ég ekki að þetta verði svona í Wolf:ET svo ég vill að við tökum okkur til í smettinu og vinnum bara að því saman að láta banna þetta pakk sem ætlar að vera að stunda þetta. Svo ef þið verðið vitni af svona vitleysu þá eru bara tekin nokkur skref og þá er allt gott og ég ætla að fara yfir þau hérna fyrir neðan.

1. Farið í spec

2. Veljið þannig að þið séuð að horfa á einstaklinginn sem þið grunið um svindl.

3. Farið í console, skrifið /record <nafn> (/record hoddinoob til dæmis) eitthvað nafn sem þið viljið bara :)

4. Takið niður Guid. Það er gert með því að fara í Console -> Skrifa /players og þá fáiði lista með nöfnum á öllum á servernum og takið þá niður löngu töluna sem er í línunni(Stendur Guid fyrir ofan listan sem segir hvar talan er)

5. Sendið record á admin og hann dæmir hvort verið sé að nota svindl eður ei.

6. Hann mun, ef einstaklingurinn sé að svindla, láta banna viðkomandi.


Ég vona að fólk taki sig til og geri þetta þegar þeir verða vitni af þessu. Já, ekki kicka einstaklingnum bara strax það gerir ekki neitt því hann kemur bara strax aftur.

Hugsið þetta svona: Þeir sem eru að svindla eru að skemma leikinn fyrir mér og öðrum.

Takið þetta inná ykkur sem þurfa. Ég veit allveg um nokkra sem hafa svindlað og ég mun ekki hika við að segja frá þeim þegar ég fæ sannarniar á hreint.

P.S Adminar ef það er eitthver möguleiki, getiði verið aðeins aktívari á serverum? :)
Hreggi