Jæja þá erum við komnir með okkar eiginn kubb hér á huga. Þakka Bloodsound fyrir það :). Ég ætla að útskýra aðeins hér hvað við munum vera að fást við. Við ákváðum í gær að hafa svona “slúðurpakka” en af hverju ekki að henda þessu á annað level? Hérna ætlum við að setja inn viðtöl og fréttir af íslenska ET heiminum. Þessar fréttir verða samt í öðru tagi en þið hafið séð kannski af síðunni eSports sem var uppi hérna í denn. Við munum ekki vera að hugsa mikið um “alvöruna” í et heiminum. Þetta mun heldur snúast um það að hafa gaman af hlutunum og koma með heldur óvenjulegar fréttir. En auðvitað komum við með eitthverjar fréttir ef það er eitthvað svakalegt að gerast.
Ég held ég tali fyrir marga þegar ég segi að það var orðið frekar þreytt að koma hingað inn og lesa “kemst ekki á server” eða “kickað utaf engu” korka. Svo þetta sem við erum að gera er einungins til að lyfta upp stemningunni hérna og láta ykkur vonandi brosa. Einnig tek ég fram að ef þið sjáið eitthvað eða hafið eitthvað sem gaman er að lesa endilega komið því til mín.

Smáa letrið: Þetta er ekki gert til að særa einn eða neinn, ef þetta særir eitthvern sem við munum koma til með að skrifa getur sá aðili náð í mig á hreggman@hotmail.com og ég mun laga til eftir það :)

Enjoy :)
Hreggi