það er búið að ákveða að gefa út gamla klassíska wolfenstein 3D út aftur, en sá leikur markaði byltingu í fyrstu persónuskotleikjum á síðustu öld. leikurinn á að koma einhvern tímann á næsta vetri út og er það öruggt að margir ungir sem aldnir munu bíða í röðum eftir honum. leikurinn skeður í seinni heimstyrjöldinni og hefur maður fullt af vopnum og allskonar gear á sér. öll borðin eru stútfull af leynileiðum og aukalífum. einnig er fjölbreytileikinn á köllunum í sérhverju borði mikill. endakallarnir eru hrein snilld og er gaman að hakka niður t.d. hitler sem er í einhverjum kikkass suits.