Hillu,

Ég hef ekki spilað ET af viti síðan á skjálfta 4/04, en ég hef mikinn áhuga á því að hafa Wolfenstein keppni á næsta LAN móti.

Er einhver áhugi fyrir hendi hjá ykkur að mæta á LAN og spila ET ásamt því að geta tekið þátt í ‘Leikjapartí’? Ef það nást amk 4 lið, þá ætti ég að geta komið því í gegn að hafa ET keppni með einhverjum smáverðlaunum.

Þetta yrði lítil keppni, þannig að þeir ykkar sem spila CS, CSS eða cod4 geta líka keppt einum af þessum leikjum.

Ef þið viljið tala við mig og fá nánari upplýsingar um mótið, endilega pmið mig á IRC, þið getið fundið mig á IRCnet og Quakenet á rásinni #lanmot.is

Kv,
[God]warden