Return to castle wolfenstein er snilldarleikur og er einn flottasti fyrstu persónu skotleikur sem ég hef prófað. En alltaf er hægt að finna galla, og þó að þessi leikur sé nánast gallalaus fann ég einn.
ÉG var orðinn svolítið leiður á að reyna aftur og aftur að vinna einhvern übersoldat sem pumpaði basúkuskotum á mig og ákvað bara að hlaupa að honum og hnífa hann. Ég hljóp að honum beygði mig niður og allt í einu hætti hann að hitta mig og skaut bara yfir mig og ég missti ekkert líf.
Þannig að ef þið eigið erfitt með að busta þessa basúkukalla, setjist þið þá bara niður og hnífið þá :D
Það getur valdið slímhúðarbólgum að taka í nefið eða vörina.