Fyrir þá sem eru orðnir alveg hundleiðir á TFC og langar til að prufa eitthvað nýtt - þá er þetta leikurinn!

Hef verið að skoða þetta Test 2 síðustu daga og er verulega ánægður með það. Það sem mér finnst einkum áhugavert er hversu “team-play” er mikilvægur hluti leiksins; “special ability” hverrar týpu skiptir það miklu máli fyrir gang leiksins …og svo má auðvitað ekki gleyma “reality” …

Legg svo til að admin á Símneti lengi “practice” time milli “rounds” - hef grun um að of stuttur tími valdi a.m.k. sumum spilurum erfiðleikum sem lýsa sér þannig að leikurinn frýs þegar skipt er um round … ég verð stöðugt var við þetta á Símnetsservernum en aldrei á útlendum serverum sem flestir hafa 15 sek. prematch.