Fjöldi kjósenda hefur komið að máli við mig og tjáð mér ánægju sína með nýjan valkost og fjöldbreytileg verkefni í úlfaheiminum.

Helsta vandamálið er að einungis “advanced” leikmenn vita hvernig á að fylgjast með öðrum serverum, massinn tengist bara “pró” eða “public” og breytir ekki út af vananum; eins og jarmandi framsóknar/sjálfstæðis kjósendur kjósa þeir sína traktorsflokka aftur og aftur og kíkja aldrei á stefnuskrá hinna.

Því vil ég hvetja anarkista og kommúnista leikjasamfélagsins (og þá traktorskjósendur sem vilja stýra uppúr hjólfarinu) að sameinast í góðri baráttu, og stilla saman úr sín til að koma saman á viva kjörseðlinum kl 18 og / eða kl 20 í kvöld.

/connect 157.157.134.204

kveðja,
múmínpabbi