Nú er maður orðinn nett pirraður. Hingað til hefur mér fundist mjög gaman að spila á Simnet main útaf góðu kampeigni, low population, og ágætu fólki en það er eins og uppá síðkastið hafi magn haxera færst í aukinn. Svo kom dropinn sem fyllti á mælinn þegar haxerar voru yfir 50% af fólkinu á servernum og þýddi þá ekkert að gera /callvote neitt.

Mér þykir leiðinlegt að sjá aldrei í nöfn refree'a á servernum og því vill ég bjóða mig eða einhvern okkar í Saint (st.) fram sem refree á main. Vita það fjölmargir að þegar við í Saint erum ekki að skrimma erum við á main og því teljum við okkur geta haldið servernum nokkuð hreinum frá ösnum sem haxa.

Komiði endilega með komment á þetta því mér finnst synd að horfa á skemmtilegan server falla í hendur gaura sem kunna ekki að miða.

Kv. St.Mumin
-Sem vonast til að hugmyndin fái sem bestar móttökur.
Ef sorg á hjarta þitt bítur, ef ástin er horfin á brott,