Langt síðan ég kom með þessa hugmynd en nú er tími til að koma þessu í gang.
Þetta verður mjög einfalt , eins mörg lið og vilja taka þátt fá að keppa svo lengi sem þau hafa 6 manns á roster.

Þetta cup mun fara fram Sunnudaginn 18.desember , held að flestir ættu að vera búnir í prófum um þetta leiti og því ættu sem flestir að hafa tíma.

Einsog þið sjáið þá er þetta bara einn dagur , líklegra að leikir verði spilaðir ef þetta er allt spilað á einum degi , einn heill dagur í ET , eitthvað betra ?

Annaðhvort verður spilað í riðlum og svo útsláttarkeppni eða bara beint útsláttarkeppni en það kemur í ljós , fer bara eftir því hversu mörg klön skrá sig í keppnina.

Til þess að skrá ykkur í keppnina þá einfaldlega bara ræðið þið við hann Yuki á irc á #wolfenstein.is , þurfið að segja nafn á klani , hverjir spila í klaninu og hvernig má ná í ykkur.

Möp og reglur verða tilkynntar seinna.
I like to kill and dance ballet.