Ég er að leita að nýjum borðum sem passar fyrir u.þ.b. 12 manns að spila. Flest ný borð eru gerð fyrir 32 sem passar okkur ekki alveg, þar sem okkur þykir það ekkert ofboðslega spennandi að þurfa að leita að óvininum allt of lengi :) Okkur gengur alveg ágætlega með borð eins og Fuel dump en ekki mikið stærri borð en það. Ef þið eruð með einhverjar uppástungur þá væru þær velþegnar.