Ég spila et mjög mikið og hef oft haft gaman að, en nú verða menn að fara að koma í veg fyrir að menn HAXI. Ég var að spila áðan. Þá voru inni S.A blade master, Dwaggy og Booger, allir að haxa og voru ekkert að skammast sín fyrir að segja frá því. Þannig að ef það á ekki að koma í veg fyrir svona þá verður að setja upp server fyrir þá sem ekki þurfa að svindla til að við getum spilað leikinn áfram, það er óþolandi að þurfa að spila á móti gæjum sem verða að nota hax til að komast sem hæst á stigatöflunni og monta sig, svo af því hvað þeir eru góðir með hjálp TÖLVUNNAR. Það er ekki sanngjarnt og ekki skemtilegt að spila þegar menn eru farnir að skjóta mann gegnum veggi og annað slíkt. Þetta verður bara til þess að innan skamms verða allir farnir að nota hax svo að sé hreinlega hægt að spila leikinn. Þannig að bregðist við og lokið á aulana sem þurfa endilega að svindla. Takk fyrir mig.