Ég hef verið í tómum vandræðum með að spila ETpro demo í ET undanfarið. Eina lausnin sem ég hef haft á þessu vandamáli er að tengjast inn á match server og svo spila demoið. En nú er ég loksins búinn að leysa þrautina.

1. Nauðsynlegt er að setja í windows shortcutið á ET +set fs_game etpro. Hægri klikka á shortcutið, velja properties. Í Target skal þá setja “+set fs_game etpro” (ekki gæsalappir).

Þetta er reyndar ekki nóg, því stundum kemur upp client/server game mismatch villa þót um nýjasta ETpro sé að ræða. Þetta er böggur í ETpro sem má laga á einfaldann hátt.

2. Opnið ETpro-3_0_1.pk3 (sem er í raun zip fæll) með winzip. Extractið skrárnar cgame_mp_x86.dll og ui_mp_x86.dll í ETpro folderinn.

3. Demo eiga að fara í folderinn ETpro/demos og skipunin “dir demos” sýnir þér hvaða demo eru til afspilunar í console. Skipunin “demo” er svo notað til að spila demoið.

Ég vona að þetta hjálpi einhverjum. :D