Þessi saga er um persónu sem kallar sig Elgur (með bláu E) þessi saga er sannsöguleg og fjallar hún um strák/stelpu sem eitt gott kveld ákvað að spila Enemy Terratory á Simnet #2 servernum sem mun vera PunkBuster laus að mig minnir og ef mér skjátlast ekki þá fór Elgur í annaðhvort liðið =P Og ekki nóg með það heldur velur hann Medic classann og vitið menn svakalega er hann góður spilari, alveg mega-uber-dúper. Og hann er svo góður að halda mætti að hann sæi í gegnum veggi því hann horfði meira á veggi heldur en í kringum sig og alveg var hann frábær í að miða í hausana á óvininum svo frábær að það mætti halda að hann fengi aðstoð frá eihverskonar aimbot-thingy. En ég ætla ekki að skemma fyrir ykkur endirinn þar sem að ég er með upptöku af þessum svaka spilara sem sennilega er handlama þar sem að hann þarf aðstoð við að miða. =P


Ef í ljós kemur að þessi spilari var ekki að svindla þá biðst ég afsökunar á þessari fallegu sögu um þig Elgur.


En ef að þú ert fundinn sekur þá held ég að það sé einhverskonar reglur sem gilda um svindlara, mig minnir að það sé BANN, ekki man ég hvað lengi það gildir en það er líklegast langur tími.

mér finnst eins og ég sé að gleima að nefna eitthvað, ef svo er þá skítt með það bara. =Þ


Því miður getið þið ekki séð lengri upptökuna þar sem að hún er of stór fyrir heimasvæðið mitt. =Þ En þó fáið þið að sjá stuttu upptökuna.

Here goes nothing !
<a href="http://easy.go.is/beigla/elgur-1.dm_83">http://easy.go.is/beigla/elgur-1.dm_83</a>

Ef linkurinn virkar ekki þá biðst ég afsökunar á því að þið þurfið að nota Copy/Paste.

Og enn og aftur ef að þetta er ekki rétt saga þá biðst ég afsökunar á þessu rugli í mér.