Ég er búinn að fá nóg af þessum helvítis móral út af Panzer.

Ég er búinn að vera að nota hann í svona 3 hverjum leik sem ég spila, og það má ekki fragga án þess að fá væl um að vera Panzerhóra og noob.

Hvað er þetta með ykkur, það er ekkert mál að snipa þá sem nota panzers eða bara að panzera á móti.

Á erlendum serverum hef ég hvergi rekist á svona móral, og í staðinn fyrir að fá “Panzermella” og “Panzer þarf ekkert skill” þá fær maður Great shot frá mótherjanum.

Svo að mín tillaga er að annaðhvort hættið þið að væla eða setjið panzer limit á serverinn, eins og ég hef rekist á á erlendum serverum.

Og persónulega finnst mér Field ops vera miklu meira vandamál, með endalaus Airstrikes og artillery sem geta stoppað leikinn alveg í flöshuhálsum.

Ég efast um að þið vilduð vera á server þar sem engir Panzers, Mortar, Airstikes og Atrillery væru, þá gætuð þið alveg eins farið aftur að spila Counter aftur.

Og eitt enn, ég fer fram á það að þeir sem taka að sér dómarastöður, séu ekki að spila á meðan til að forðast hlutdrægni:
Ég var að spila Nort Africa, og var kominn með 4 lvl Heavy eftir 1. borðið, var hvorki að spawncampa né campa yfirleitt, og var með 190%acc með panzer eftir borðið. Svo í byrjun næsta maps, kickar MínuZ mér án þess að vara mig við, og ég tapaði eitthvað um 300 xp!

Þá er það komið á framfæri, og btw. það þarf skill til að nota panzer, sérstaklega til að taka 3-4 í einu langt frá spawn point, og lifa af til að nota öll 4 skotin!

Kveðja - Arucard<br><br>- Óska