Ég er búinn að fá nóg af þessum helvítis móral út af Panzer.

Ég er búinn að vera að nota hann í svona 3 hverjum leik sem ég spila, og það má ekki fragga án þess að fá væl um að vera Panzerhóra og noob.

Hvað er þetta með ykkur, það er ekkert mál að snipa þá sem nota panzers eða bara að panzera á móti.

Á erlendum serverum hef ég hvergi rekist á svona móral, og í staðinn fyrir að fá “Panzermella” og “Panzer þarf ekkert skill” þá fær maður Great shot frá mótherjanum.

Svo að mín tillaga er að annaðhvort hættið þið að væla eða setjið panzer limit á serverinn, eins og ég hef rekist á á erlendum serverum.<br><br>- Óska