Nú hefur fólk á #Wolfenstein.is á irkinu verið reyna að ná leiknum aftur upp, og það hefur tekist ansi vel. Fleira fólk er nú byrjað að spila og er það auðvitað miklu skemmtilegra. En sumir hafa verið í vandræðum með eitthvað OSP rugl(Og ég er einn af þeim). Þ.e.a.s. þegar OSP er virkt á serverum er fólki kickað eftir 1-2 mínútur. En ég og vinur minn tókum eftir því að þetta er bara á SW(Stopwatch Mode) serverum. En ekki MP. En OSP er á öllum SW serverum. Þannig að ég var að hugsa hvort það væri ekki hægt að taka þetta af, svo fleiri geti spilað, eða öðrum orðum breyta þessu í MP server. Því það væri miklu skemmtilegra ef að allir kæmust inná og allir gætu spilað án nokkurrar ónáðar. :)