Q3-pickup er irc-bot, sem staðsettur er á rásunum #tdmpickup.is (q3 teamplay), #ctfpickup.is (q3 ctf) og #rtcwpickup.is (wolfenstein). Kíkið einfaldlega á rásirnar, og skrifið !addme ef þið viljið taka þátt í blasti. Bottinn bætir þeim sem það gera í lista yfir þátttakendur í topic rásarinnar, og hóar í alla sem skráðu sig þegar tilskildum fjólda er náð (8 í tdm, 10 í ctf, 10 í Wolfenstein). Snjallt? :)

Ég held að 10 sé virkilega góð tala; þannig er ekki of erfitt að starta pickup blöstum, og aðrir geta svo bæst við þegar þeir sjá hvað er í gangi í Gamespy, á IRC o.s.frv.

Munið bara að gera !removeme ef þið hættið við þátttöku í blasti!