Kominn er upp RTCW Match server á skjalfti16.simnet.is:27961. Password þarf til að nota þjóninn, en unnt er að fá það afhent til u.þ.b. tveggja klukkustunda með að tala við mig ( [M]Smegma ) á #wolf.is á IRCnet. Athugið að ég vil aðeins heyra frá _einum_ fulltrúa þeirra liða sem hyggjast nota þjóninn (sérstaklega ef menn fara að láta sér detta í huga að senda mér private message, nóg af þeim fyrir ;)).

Stillingar þjónsins eru annars frábrugðnar skjalfti16.simnet.is:27960 að þessu leyti:
-Hann leyfir 24 clients, í samræmi við stærð liða á Skjálfta 1 | 2002; sem sagt allt að 12 manna lið.
-Warmup tími er 90 sek, í stað 20.
-Map rotation er ekki virkt.
-Ýmis smáatriði.

Ef eitthvað mætti betur fara í stillingum þjónsins, kippi ég því í liðinn hið snarasta. Unnt er að panta hann með hámark sólarhrings fyrirvara, og verður þá topic #wolf.is notað til að sýna hverjir hafa afnot af honum á hvaða tímum. Vilji mörg lið fá hann sama kvöldið, má búast við að lánstími verði minni, eða 60-90 mínútur.

Ég mun mögulega skrifa eitthvað vefkerfi til að panta þjóninn, en í bili verður þetta að duga. :)