Nú hafa framleiðendur Wolfenstein gert nýtt MP demó sem verður lokademóið samkvæmt þeim, í þessu demó er gamla demó borðið “Beach Landing” og líka eitt nýtt borð sem heitir “TrenchToast” og er Capture the flag borð. Borð þetta var sérstaklega búið til með það í huga að gera þetta skemmtilegt Sniper umhverfi líka. Nú er búið að losa sig við Lt. böggið en það var og er þannig í gamla demóinu að það er hægt að vera með endalausar handsprengjur og kasta þeim mjög fljótt svo lengi sem maður er leutenant (hvernig sem það er skrifað). Það eru greinilega ekki nógu margir búnir að dánlóda þessu því það eru oftast um 4-5 serverar sem maður nær. Það sem er mest pirrandi er að það er alltaf verið að skipta á milli borða sem tekur tíma. Persónulega finnst mér Trenchtoast samt skemmtilegt borð þótt það sé langt frá því að vera jafngott og þau bestu í leiknum …

kv
sup
_____________________________