Ætla bara að senda hér reglur skjálfta þjónana því ég er farinn að taka eftir að margir eru að brjóta reglur :)

http://www.skjalfti.is/reglur/

Almennt

1. Reglur þessar gilda um alla leikjamiðlara Símans internet, Skjalfti*.simnet.is, hvaða leiki sem þeir hýsa þá stundina.

2. Leikjaþjónarnir eru reknir af Símanum, fyrir sína viðskiptavini, en þó sem sem opin, valfrjáls þjónusta. Leikmenn sem nýta sér þessa þjóna eru bundnir af þessum reglum, og samþykkja með notkun þeirra að hlíta þeim.

3. Stjórnendur geta fjarlægt leikmann af þjónunum, eða bannað ef þörf krefur, og er beinlínis ætlast til að þeir beiti því valdi sínu séu reglur þessar brotnar. Ákvarðanir stjórnenda eru endanlegar. Stjórnendur eru þeir sem í umboði Símans reka leikjaþjónana hverju sinni. Til stjórnenda svara svo meðstjórnendur, sem eru handhafar svokallaðs remote console password (rcon password). Meðstjórnendur eru ekki fulltrúar Símans.

4. Hvers kyns svindl eru bönnuð. Svindl eru meðal annars, en ekki einskorðuð við, hvers kyns breytingar á “client” hluta leikjanna, eða viðbótarhugbúnaður, sem miða að því að gefa leikmönnum forskot á aðra keppendur, til að mynda með sjálfvirkri miðun, hraðabreytingum, grafíkbreytingum, hljóðbreytingum, breytingum á gögnum sem send eru þjónunum. Lokaorð eiga stjórnendur, sé álitamál hvort athæfi teljist svindl eður ei.

5. Leikmaður skal sýna fyllstu kurteisi í samskiptum við aðra leikmenn, svo og stjórnendur þjónanna. Þetta á einnig við um samskiptavettvanga leikmanna utan þjónanna, t.a.m. Skjálftaáhugamálin á www.hugi.is og spjallrásir á IRC, þar sem leikmenn koma saman.

6. Endurteknar ásakanir um svindl, án áþreifanlegra sannana, eru bannaðar. Dæmi um sannanir eru skjáskot og demoupptökur af athæfinu. Stjórnenda er að vega og meta gögnin, og ákveða hvort ásakanir eigi við rök að styðjast, og bregðast við samkvæmt því.

7. Misnotkun þekktra galla í leikjahugbúnaðinum (e. exploits) er bönnuð. Hafi slík misnotun áhrif á stöðugleika, afköst eða öryggi þjóns, verður talað við viðeigandi yfirvöld.

8. Öll notkun þjónanna, þar með talin samskipti leikmanna, er skráð. Skrárnar geyma IP tölur leikmanna, tímakóða, og frekari upplýsingar. Einungis stjórnendur hafa aðgang að þessum skrám, en þær eru m.a. nýttar þegar grunur um reglubrot vaknar.

9. IP tala leikmanns telst ekki einkamál hans, né heldur svokallað won-id.

10. Skilmálar Internetþjónustu Símans - http://www.siminn.is/control/index?pid=42955 - gilda um mál sem þessar reglur skera ekki úr um.

11. Um leikjamót á vegum Símans, þar með talin Skjálftamótin gilda viðbótarreglur sem leikmenn skulu kynna sér fyrir hvert mót.

12. Vísvitandi eða ítrekuð “teamkill” (að drepa liðsfélaga) á þjónum sem slíkt er mögulegt á (friendly fire), varða við bann.

13. Reglurnar, þar með talin regla 10, gilda um alla leikmenn, hvaðan sem þeir spila, og hvaða netþjónustu sem þeir tengjast.

14. Ákvarðanir stjórnenda eru endanlegar, athugasemdir skal senda á netfangið <skjalfti&skjalfti,is> (breytið & í @ og , í . - spam laggar :).

15. Síminn, stjórnendur og meðstjórnendur taka enga ábyrgð á skaða sem kann að hljótast af notkun þjónanna, tilfinningalegum, fjárhagslegum, eða öðrum. Þetta gildir einnig um sambandsleysi við þjóna, hver sem orsökin kann að vera.

Óskrifaðar Reglur

Eflaust hafiði heyrt um Óskrifaðar reglur einhverstaðar og eru margar þannig í Wolfenstein á Simnet þjónum ég veit ekki sjálfur hverjar þær eru :)

Vona bara að fólk fari að temja skapið sitt á skjálfta þjónum vegna þess að þetta samfélag á ekki eftir að standa lengi með þessu áframhaldi :(

Kveðja. Saxi