Eins og var bent á í korknum mínum virðist vera mun meiri áhugi fyrir 6vs6 keppni http://www.hugi.is/wolfenstein/threads.php?page=view&contentId=1904160

Ég ætla því að reyna koma einni slíkri á fót en þó verður skellt nokkrum extra reglum á til að koma í veg fyrir að það sama gerist í þessari keppni og gerðist í Severe deildinni. Svona helsta reglan er sú að lið verða að hafa mannskap ef þau ætla skrá sig 6+ (helst mun fleiri en 6)

Skráning mun hefjast þann 30.1 og standa yfir í sirkað viku og mun það fara eftir fjölda hvort það verði 1 riðill eða 2 riðlar.

Til að skrá lið skal tala við mig á irc #wolfenstein.is (og segja mér lið og leikmenn) eða skilaboð via hugi.is (ef hitt er ómögulegt)

En að minnsta kosti einn ur hverju liði þarf að idle-a rásina (á irc) sem upp verður sett fyrir keppnina en það vantar líka nafn á þennan ágæta cup þannig ef þið hafið hugmyndir skal senda skilaboð á mig ;)

Látið alla vita af þessum cup sem gætu hugsanlega viljað taka þátt og litlu clönin skulu endilega skella sér í það að redda fleiri members eða sameinast öðrum litlum til að geta tekið þátt í þessu og skemmt sér svolítið.
Elvar