Ætla að byrja á því að taka fram að ég kalla mig Undri í Wolfenstein.

En allavega, mín skoðun hefur alltaf verið sú að það sé lang skemmtilegast að spila á íslenskum serverum í lang flestum tölvuleikjum, í öllum þeim leikjum sem ég hef spilið hefur mér alltaf fundist eins og íslendingar séu hvað skemmtilegastir og svo ekki sé talað um hæfileikaríkastir af þeim almenniningi sem spilar tölvuleiki.
Mér hefur alltaf fundist Íslenskir serverar vera alger andstæða þeirra erlendu sem að vilja allir svindla eins mikið og hægt er, þar er líka spawncamp vinsælt og allir hugsa bara um sjálfan sig og eru alltaf með endalaust pirrandi móral sem sést oftast í textaskilaboðum eins og “I own y0 n00b” eða eithvað álíka.

Af þessum orsökum varð ég gjörsamlega brjálaður núna fyrir uþb 10 mín. áður en að ég skrifa þessa grein því að ég ætlaði á simnet serverinn og skemmta mér eins og vanalega, þegar ég joina erum við að klára beach borðið og eins og flestir vita kemur á eftir því eitt af uppáhalds borðunum mínum, Gold Rush. Hérna verð ég fúll, ég tók ekki eftir því strax reyndar en axis liðið var með uþb 2-3 sinnum meira total xp heldur en liðið okkar, og eins og allir ET spilarar með eithvað vit í kollinum geta sagt sér, þá er það svakalegur munur, sérstaklega þegar hærra liðið hegðar sér eins og fólk á kana serverum og er alveg gjörsamlega drullu sama um það og vill hvorki gera xp shuffle né nokkuð annað til þess að reyna að balanca liðin.
En allavega, ef það eitt og sér væri málið hefði ég líklega ekki orðið fúll, hefði bara spilað eins og vanalega en nei, ég tók eftir þvi að íslendingar höfðu tekið upp tvö önnur leiðinleg persónueinkenni af útlenskum serverum. Liðið sem var mun betur statt hvað varðar xp (sem var axis í þessu tilfelli) byrjaði á því að rusha beint á spawnið hjá axis og gerði síðan ekkert næstu 10 mín. (sem var sá tími sem ég nennti að spila) heldur en að hanga þar, með bæði artillery strikes og air strikes gallore.
Aumingja allies, með allavega 3 óvirka playera gátu ekkert gert og þegar maður reyndi að segja eithvað við þessum kanaskap þá sá maður enn einn hlutinn sem íslendingar virðast hafa lært, annað hvort af CS kynstofninum eða útlendinga serverum, en það er þetta “I own y0 n00bzor” tungumál sem ég skil ekki baun í og vil ekki skilja.
Ég ætla ekki að monta mig en ein af þeim ástæðum fyrir því að ég spila þennan leik er að ég tel mig þó nokkuð góðan í honum og hef getað spilað alla klassa nema panzer og field op með mjög góðum árangri, samt voru einhverjir þarna sem vorum með 700 meira xp heldur en ég sem töldu sig vera svo hæfileikaríka af því að þeir gátu spawncampað svona vel og drepið mig hvað eftir annað á spawn staðnum mínum (ég var með 0-10 xp btw) að þeir töldu sig hafa fullan rétt á því að kalla mig n00ba og fleirri “wannabe” móðgunum sem að ég nennti lítið að hlusta á. (reyndar var ég orðinn svo pirraður á þessum leiðindum að ég svaraði með orðum eins og fáviti en það er annað mál :) )

Ég ætla bara að vona að þetta sé ekki framtíðin með ET hérna á landi því að ef svo er sé ég mig ekki vera að spila mikið í framtíðinni og þá missa axis góðan medic :) endilega hugsið aðeins út í þetta þið sem voruð þarna.

P.S meðan ég man, ákveðinn einstaklingur var að nota /kill til þess að komast hjá Því að aðrir drepi hann og fannst mér það sjúklega fyndið…til að byrja með, það er allt annað mál að hlaupa á spawn með grensur og gera síðan /kill, bara bull og leiðindi og finnst mér að það ætti að banna það að nota kill nema þegar maður er fastur eða einhver önnur ástæða er fyrir hendi.
P.P.S - Örugglega allt morandi í stafsetningarvillum og örugglega illa upsett, en ég er að flýta mér aðeins og skrifaði þetta í smá pirringi :)