Tilgangur Medic Nú hef ég verið á server síðustu vikuna á hverju kvöldi í ca. 3 tíma hvern dag. Og er ég að taka meir og meir eftir því hvað sumir eru ekki að taka eftir tilgangi Medic og að hann sé þarna, en ég kem að því eftir smástund, þegar ég er búinn að taka fram tilgang Medic.

Medic:
Þegar liðfélagi missir mikið líf eða slasast(Og dettur niður) þá á Medic að hlaupa strax að honum og gefa honum Medpack eða nota Syringe sprautuna til að lífga hann við. Medic er með til að hjálpa, þess vegna á hann að einbeita sér að félögum sínum á stríðsvellinum og hjálpa þeim ef þess er þörf.

Ég er einn þeirra sem spila alltaf Medic, og einbeiti ég mér virkilega við að hjálpa félögum, hvar sem meiddur maður er, hleip ég alltaf til hans og hjálpa honum, jafnvel þegar það eru nokkrir óvinahermenn í kringum mig, hleyp ég alltaf og hjálpa..því ég er Medic!

Tilgangur þessarar greinar er sá að meðan ég hef verið að spila ET, hef ég tekið eftir því að fólk á það til að kalla á Medic, og byrja svo að hlaupa í burtu(Þegar það vantar líf), því það er kannski að elta óvin eða bara á hreyfingu. Og þegar félagar manns slasast og detta niður í bardaga, Þá tek ég oftast strax eftir því og hleyp til að hjálpa, en sumir eiga það til að klikka strax á músartakkann og bíða eftir næsta spawni. Og eru þá ekki að meta það að Medic er kannski á leiðinni að hjálpa með Syringe í hendinni(Meðan óvinurinn er að tæma clip-ið á Medic-inn). En þessu hef ég lent mjög oft í, og fer að verða svolítið pirraður á. Ég lendi stundum í að vera að gefa fólki Medpack og ná aldrei að kasta því til þeirra því það er alltaf á hreyfingu, þó það sé búið að biðja um Medic.

Hérna er það sem ég legg til:

-Þegar kallað er á Medic, og einhver svarar “I'm a medic!”(Sem ég geri alltaf) hvernig væri þá að líta í kringum sig og sjá hvort einhver Medic er á leiðinni til að hjálpa manni, og stoppa þá og bíða eftir að Medic-inn hefur gert sitt.
-Þegar leikmaður slasast, og dettur niður. Hvernig væri að bíða aðeins og sjá hvort að Medic sé á leiðinni að hjálpa, og jafnvel þegar Medic-inn hefur notað Syringe, leyfa honum þá að gefa manni nokkra Medpack í leiðinni.

Til að Medic getur verið með, þarf að leyfa honum að gera það sem hann er þjálfaður til að gera, svona til að gefa dæmi, þá spilaði ég heilan leik áðan, semsagt úr 0 Xp og þangað til næsta. Og var ég kominn með 4 stjörnur í Light Weapons, og 1 stjörnu í Medic skill-inum. Og þetta fannst mér leiðilegt því margir af liðfélögunum sem ég reyndi að hjálpa, annað hvort hlupu í burtu eða ýttu á músartakkann og biðu eftir að þeir spawn-uðu næst, sem getur verið oft uppí 20-30 sek. Og síðan vil ég líka taka fram að sumir Medics eru komnir með það mikið Xp, að þeir fái grænar Syringe sprautur sem gera það að verkum að liðfélagi sem maður lífgar við, vaknar upp með fullt líf. Þegar félagi manns er með mjög lítið líf, tekur oft ekki að vera að gefa honum Medpacks, heldur að skjóta hann og lífga hann síðan við, með grænum Syringe, með fullt líf. En sumir virðast einfaldlega ekki fatta þetta, og gera complaint, og ýta á takkann þannig að maður hefur ekki til að lífga hann við. En það sem ég vil gera er að biðja fólk um að leyfa Medic aðeins að gera sitt, eins og öllum öðrum klössunum.

P.S. Síðan vil ég einnig benda fólki á að lesa greinarnar sem eru komnar um klassa í ET, þar á meðal Medic.