Íslenskir serverar Jæja, íslenskir serverar fyrir Wolfenstein hafa nú lengi verið “dauðir”. Og datt mér í hug að gera þá eitthvað í því, og fá annað fólk í að gera það líka. En spurningin er, hvernig er hægt að fá meira fólk. En ég las eitthvað hér á þessu áhugamáli, um að taka niður CD-Key protection, eða þannig að hægt sé að spila með sjóræningjaútgáfu af þessum leik. En það er ein hugmyndin, en síðan kemur líka til greina að bjóða útlensku fólki inná þennan server, en hægt væri þá að fara inná útlenskar síður og auglýsa. En eitthvað verður að gera í þessu. En það sem ég er að hugsa; hverjir vilja spila þennan leik, hverjir vilja aftur taka þátt í almennilegu teamplayi, hverjir vilja byrja að spila þennan skemmtilega leik aftur? Þannig að mér datt í hug að senda hér inn grein, og fá svona hálfgerðar undirskriftir um fólk sem vill spila þennan leik. Þ.e.a.s. ákveða kannski tíma á kvöldin eða eitthvað í þá áttina. En þannig að ég bara spyr, hverjir vilja spila Wolfenstein aftur????