Fyrst skulum við gera nauðsynlegar breytingar á þeirri tölvu sem
er tengd á netinu(netþjónn).

Ég miða þessar leiðbeiningar við Windows 2000 og Windows XP því
ég veit ekki hvort ICS er á öðrum Windows stýrikerfum.

Nú skulum við gera nauðsynlegar breytingar á
netþjóninum…

1. Farðu í stjórnborðið á tengingunni. Ef þú sérð táknmyndina
fyrir tenginguna, hægri-klikkaðu á hana og farðu síðan í
status

eða…

ýttu á Start, síðan Control Panel og síðan Network Connections.
Þar hægri-klikkarðu á Internet-tenginguna og velur status.

Þar ættirðu að sjá þetta:

2. Núna áttu að klikka á Properties, síðan Advanced og færð út
þennan glugga:

Hérna á að vera hakað við ”Allow other network users to connect
through this computer's Internet connection“. Neðsti
valmöguleikinn í valmyndinni er ekki nauðsynlegur en ég ráðlegg
ekki að hafa hann hakaðann nema þú getur treyst öllum sem
tengjast í gegnum tölvuna.

Ef þú vilt ráða IP tölu þinni sjálf(ur) en ekki hafa þessa
leiðinlegu 192.168.0.1 IP tölu, þá heldurðu áfram að lesa.
Annars hopparðu á seinasta skref.

3. Endurtaktu skref 1 nema núna velurðu ”Local Area Connection“
í staðinn fyrir Internet tenginguna. Þá ættirðu að fá þennan
glugga:

4. Finndu Internet Protocol (TCP/IP) undir ”This connection uses
the following items:“ og tvíklikkaðu á það.

Ef þú sérð það ekki, veldu ”Install…“, síðan ”Protocol“, síðan
”Add…“, manufacter er Microsoft og þarna ætti ”Internet
Protocol (TCP/IP)“ að vera. Ýttu síðan á ”OK“. Tvíklikkaðu núna
á það.

Svona ætti glugginn nokkurn veginn að vera stilltur. Svona áttu
að stilla gluggann:

IP address = Þetta er IP talan sem þú vilt að netþjónninn ætti að
vera stilltur sem. Ég mæli með þessari IP tölu því hún er stutt
og mjög auðveld að muna. Það er ekki hægt að velja hvaða IP tölu
sem er og það má ekki vera sama IP talan sem þú notar til að
tengjast netinu.

Það skiptir engu máli hvaða Subnet mask þú vilt vera á en það
verður að vera það sama á öllum vélum sem tengjast við þig. Hitt
á að skilja eftir tómt.

Núna förum við í tölvuna sem tengist við hina:

5. Farðu í Local Area Connection á tölvunni sem tengist í gegnum
netþjóninn. Endurtaktu skref 3 og 4.

6. Svona áttu að stilla þetta:

IP address = Notaðu sama IP address og á hinni NEMA breyttu
talnaröðinni á eftir seinasta punktinum í eitthvað annað.

Subnet mask = Hafðu það nákvæmlega það sama og á netþjóninum,
annars mun þetta ekki virka.

Default gateway = Skrifaðu IP töluna á netþjóninum hingað.

Preferred DNS server = Skrifaðu IP töluna á netþjóninum
hingað

7. Endurræstu báðar tölvurnar. Til öryggis, ræstu netþjóninn
fyrst og síðan hinar tölvurnar.