Þannig er mál með vexti að ég var að kaupa mér ný sennheiser headset til að geta spilað tölvuleiki betur en það heyrist bara í hægra eyranu, svo þegar ég stilli hátalarana á þá heyrist bara í hægri hátalaranum. Þetta er alveg óþolandi þar sem það er ekki hægt að “soundspotta” í tölvuleikjum og manni gengur þar af leiðandi miklu verr. Ef þið hafið einhverjar lausnir eða hafið lennt í þessu áður endilega látið mig vita hvort ég geti lagað þetta :)