Sælt veri fólkið. Ég er hérna með 4 dvd diska sem ÉG Á . Keypti þá semsagt dýrum dómi og vill ekki hugsa til þess að þeir eyðileggist ef bræður mínir komast í þá.

Þess vegna vantar mér gott FRÍTT forrit sem getur rippað DVD diska í t.d Xvid eða Avi fæla. Forritið þarf helst að geta rippað í GÓÐUM GÆÐUM. Ekki eitthvað rusl.

Ef þið vitið um eitthvað gott forrit þá myndi ég virkilega kunna að meta það ef þið gætuð bent mér á hvar ég gæti nálgast það?