Lenti í því að nýleg fartölva krassaði með bláskjá og tilheyrandi leiðindum sem ég fæ ekki ráðið fram úr og nú ræsir hún sig bara alls ekki, búinn að fara með hana í viðgerð sem bar ekki árangur en á eftir að fara með hana til ábyrgðaraðila.

Nú voru tveir partitions á disknum og ég mundi vilja ná öllu sem var á geymslu partitioninu áður en ég skila henni þar sem ég á allt eins von á því að fá nýja tölvu.

Hvernig kemst ég inn á diskinn ?