Alltaf þegar að ég kveikji á flakkaranum mínum kemur upp þessi spurning, what do you want windows to do? Allt í fína með það svo sem nema að fyrstu valmöguleikarnir eru þeir sem ég mundi seinast velja, t.d. opna með WMP, einhverju brennsluforriti eða að prenta gögnin. Hins vegar er neðst það sem ég nota mest, opna í explorernum.

Er einhver leið til að breyta röðinni eða fjarlægja suma hlutina af þessum lista.