Ég er í vondum málum, tralalalala. Ég á semsagt að skila inn munnlegu verkefni gegnum tölvuna og var að prófa að taka upp. Finn mér míkrafóninn minn, plögga honum inn, kveiki á sound recorder og byrja að blaðra. Hlusta svo á útkomuna. Hún var heldur glæsileg, öll í surgi!

Ég sótti mér þá headphone til að testa hvort þetta væri míkrófóninn sem væri ónýtur og tek upp smá bút, sama þar, surg surg surg!

Nú veit ég ekki hvort tölvan mín er drasl eða hvort sound recorder er það…

En anyways, er til annað forrit sem ég get nálgast á netinu til að tjékka hvort sound recorderinn sé vandamálið? S.S. annað upptökuforrit if you catch my drift…

Annars er þetta dell fartölva ef einhver kannast við svona galla í þessum beibísum þá væri flott að vita það, enda er snúllan ennþá í ábyrgð!
Just ask yourself: WWCD!