Ég er með þessa vírusvörn og hún skannar eins og hún á að gera. Gallinn er að ólíkt öðrum vírusvörnum sem ég hef prófað er þetta ekki gert fyrir vitleysinga eins og mig :)

Ég hef fengið þetta upp síðustu daga:

http://pic19.picturetrail.com/VOL1096/4701251/12089492/232882559.jpg

… og ég veit ekkert hvað ég á að gera til að losa mig við þetta. Ég hef prófað þetta Windows update en ég þarf ekki update, samkvæmt síðunni. Það gerist reglulega hvort sem er.

Veit einhver hvað ég á að gera eða hvort þetta er eitthvað hættulegt? Spybot og Ad-Aware finna ekkert.