Góða kveldið. Ég fékk það veigamikla og stórfenglega mission í vinnunni að reyna að finna eitthvað forrit sem hægt væri að nota til að setja upp vaktaplön.
Ég hugsaði strax með mér , “Hey ! Excel , klárlega”. En svo þegar ég kem heim , sest niður við tölvuna og fer að pæla þá sé ég að þetta er ekkert endilega svo góð hugmynd.
Svo ég fór á stúfanna eftir öðru forriti , Windows Project 2003 sem fylgdi office pakkanum mínum. En allaveganna á meðan ég reyni að melta Project-ið 2003 væri æðislegt ef einhver ykkar öðlinganna myndi lumma á nafni á forriti sem væri hægt að nota til að setja upp vaktaplön þar sem starfsmennirnir eru ívið fleiri en 40.

Með þökk.
Semper fidelis