Maður hefur nú lanað af krafti í gegnum árin en um daginn kom upp vandamál sem ég gat ekki leyst og trúðu mér það hafa verið leyst mörg vandamál á þessum lönum.
Allavega vandamálið felur þannig í sér að einhvernveginn get ég ekki komist inn á workgroup computers og sé engar tölvur á networki eða neitt. Leikirnir virka flestir í lönunum en ef einhver ætlar að sækja frá mér skrár þá verður hann að fara beint í möppuna og kemst ekki á yfirlitið hvað ég er að shera. Semsagt ef ég ætla shera tölvuleiknum Oblivion þá verða aðrir að fara í start…run… \\Siggi\Oblivion
Tölvan mín heitir Siggi, en það mundi koma error ef bara væri skrifað \\Siggi
Þetta er ekki stórt vandamál í sjálfu sér en ég held að það valdi öðru vandamáli sem er það að ég get aldrei haldið uppi server í einhverjum af þessum leikjum sem við spilum í.

Vinsamlegast hjálpið, og fyrir alla muni ekkert skítkast uppá stafsetningu eða álíka.