Vonast til að einhver snillingur geti hjálpað mér… vandinn er fólginn í því að ég fékk video-cameru í fermingargjöf, við fengum verkefni í skólanum um að fræðast um eitthvað starf, ég fór og tók upp viðtal við bakara, koma heim og ætlaði að “installa” myndinni í eitthvað Pinnacle Studio SE- eitthvað, sem fylgdi með vélinni! Þá þurfti ég að kaupa einhverja DV snúru og er með hana núna.
Og núna þegar hún er komin get ég ekki ennþá fengið myndina upp svo ég geti klippt hana til! Þá fór ég í windows movie maker og kann ekkert á það (sem er verst fyrir mig) og á að skila kynningunni á fimmtudaginn í þessari viku! Ég bara grátbið einhvern um að hafa samband við mig og kannski útskýrt þetta fyrir mér hérna á huga eða á MSN… Hann sendir mér bara huga-póst

í von um samband -aslaug-