Sorry ég vissi ekki alveg hvar ég ætti að setja þetta en ég vona að þið getið hjálpað mér.

Ég er með nokkrar bíomyndir sem eru .avi file-ar og mig vantar að breyta þeim í vcd, mpeg, spvcd eða eitthvað…..málið er að dvd spilarinn minn les ekki avi fila.

Svo að ég fór á netið og reyndi að fa mér einhver forrit til að breyta þessu en þau eru bara ekkert góð (demo einhver og svona) ég tók þau sum af download.com

Þegar ég ætla að breyta þessu þá koma bara errorar eitthvað með audio og svona.

Spurninginn er hvort að þið vitið um eitthvað forrit sem hefur reynst ykkur vel og helst leiðbeningar með!

Takk fyrir hjálpina.