Opera 6 er algjör snilld!!!!!!!!!!!
Fullt af nýjum möguleikum sem voru ekki í Opera 5. Opera 6 getur stoppað alla “pop-up” glugga ef þú vilt, síðan er innbyggður þýðari ef þú ert kannski á franskri síðu eða eitthvað og vilt fá hana á ensku. Síðan getur þú blokkað texta og hægrismellt á hann til að leita á netinu, í orðabók eða alfræðiorðabók. Þú getur breytt um skin, buttons og margt fleira mjög skemmtileg. Opera er “MIKLU HRAÐVIRKARI” en Internet Explorer draslið. Þú getur haft marga glugga inni í sama glugganum, þá hefur þú meiri stjórn á öllu. Einfaldur og þægilegur í uppsetningu. Þú þarft bara að ná í 3 mb ef þú vilt ekki eða þarft ekki java. En 9 mb eða eitthvað ef þú vilt java.

Hættið að nota IE eða Netscape notið “OPERA 6” á http://www.opera.com