Spurningakeppnin heldur áfram Ég hef tekið þá ákvörðun að halda áfram með spurningakeppnina. Sömu reglur verða áfram en ég gæti hugsanlega þurft að hafa tvær vikur milli keppna.

Keppnin mun hefjast að nýju fyrsta laugardag eftir HM sem að verður þann 15. júlí. Ástæðan fyrir því er sú að spurningahöfundur og stjórnandi er önnum kafin í vinnu og HM glápi og finnur lítinn tíma þar á milli, sem að fer síðan í eitthvað nauðsynlegara en að semja spurningar.

Síðan hef ég einnig ákveðið að bjóða notendum að aðstoða mig í spurningagerð en keppnin hefur verið gagnrýnd fyrir það að vera ófjölbreytileg. Þeir sem að myndu aðstoða mig í því væru að sjálfsögðu að gefa upp þátttökurétt sinn í keppninni og er öll aðstoð vel þegin.

Sjáumst hress og kát 15. júlí í nýrri spurningakeppni.

…og áfram Svíþjóð!