Miðvikudagskvöldið 21. nóvember klukkan 20:00 mun Svanur Sigurbjörnsson læknir halda fyrirlesturinn Vísindi og nýöld – bólusetningar eða blómadropar í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.

Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um um bólusetningar og áhrif þeirra. Þá mun hann sérstaklega taka fyrir þá gagnrýni sem fram hefur komið á bólusetningar og tengsl þeirra við alvarlega kvilla, svo sem einhverfu. Áætlaður tími eru 25-30 mín en að honum loknum verður fyrirspurnatími.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Res Extensa, félags um hug, heila og hátterni (http://www.resextensa.org).

Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsalnum (stofu 132) í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, og hefst kl. 20:00, miðvikudaginn 21. nóvember. Allir velkomnir.