undarlegt hvað flokkast undir þessi hugavísindi…..hehe…..

Ef alheimurinn er óendanlega stór og fjöldi mannvera sem í honum býr er endanlegur og við mundum kannski vilja reikna út hve margar mannverur búa á einhverju svæði í heiminum og mundum í þeim tilgangi deila fjölda mannvera upp í það svæði sem alheimurinn tekur…..

Þá værum við að deila endanlegra tölu upp í óendanlega tölu og útkoman úr því er óendanleg nálgun við núll, sem má skv. stærðfræðilegum lögmálum túlka sem núll: af því leiðir að það eru ekki til neinar mannverur í alheiminum og því er allt fólk sem þú hittir aðeins afurðir verulega brenglaðs ímyndunarafls.

Þetta gæti verið talsvert áfall fyrir þig en það er algjör óþarfi að panicka, það eru nefnilega talsvert góðar líkur á því að þú sért bara að ímynda þér þetta………

En ef þú panickar mæli ég með að þú finnir þér hið fyrsta góðan ímyndaðan sálfræðing sem getur hjálpað þér með þín mjög alvarlegu ímynduðu vandamál.