Sæl.

Vil bara vekja athygli á atburðunum sem ég setti inn á atburðastikuna hér til hliðar. Þar sem Vísindavefurinn fékk aukinn styrk til þessa verkefnis er nú búið að lækka verðið úr 1250 og niður í 950 kr.

Ég hvet alla til að mæta, og að sjálfsögðu helst á Undur skynjunarinnar þar sem ég kenni sjálf það námskeið ásamt Árna Kristjánssyni, doktor í skynjunarsálfræði :) Vek einnig athygli á að þetta námskeið er ekki bara fyrir þá sem hafa áhuga á sálfræði heldur hentar þetta mjög vel þeim sem hafa áhuga á líffræði, lífeðlisfræði og alls konar heilarannsóknum.