Mig langar svolítið að vita hvað ykkur finnst að betur mætti fara á þessu áhugamáli.

Nú hafa sumir beðið um raunvísindaáhugamál en ekki virðist sem neinn leggi við hlustir. Ég hef líka ítrekað reynt að fá ýmsu breytt til að þetta áhugamál geti tekið aðeins við sér þótt það sé yfiráhugamál. En sömu sögu er um þær tilraunir mínar að segja; það virðist enginn hlusta.

Ég ætla ekki að telja upp allar þær tillögur hér. Frekar vil ég vita hvað ykkur dettur fyrst í hug að betur mætti fara. Ef til vill hafið þið sömu hugmyndir og ég. Það er gott og blessað nema hvað enginn hlustar á þær. En kannski hafið þið allt aðrar hugmyndir. Lát heyra!<br><br>____________________________________
<b>Aut tace aut loquere meliora silentio.</
___________________________________